|
|
10.01.2012 14:45:35 / torfur
Góðan dag og gleðilegt nýtt ár. Nú er dagur tvö í blindbyl á þessum vetri, hinn var í nóvember að mig minnir þegar frjótækninámskeiðið var haldið og ég var einn eftir heima og þurfti að sjá um allt svæðið þ.e. Öxnadalinn, Hörgárdalinn út Arnarneshreppinn gamla, Árskógströndina og Svarfaðardalinn, Eyjafjarðarsveitina, Svalbarðströndina og Grýtubakkahreppinn (Höfðahverfið). Sem betur fer voru kýrnar nokkuð rólegar í tíðinni og ófært út í Höfðahverfi annan daginn, þannig að þetta slapp vel til þó að ég hafi verið dálítið lengi á leiðinni á þennan eina bæ í Svarfaðardalnum sem þurfti að vitja þennan dag. Þá var skaplegt veður hér inni í sveit en blindað út með firðinum, en nú virðist vera blindað um allt. Sem betur fer er ekki mikil hríð með þessu og því lítil snjór til að feykja til og skaflar því frekar litlir. Ég hef ekki bloggað síðan í október þannig að það eru 18 kýr bornar síðan þá. Síðust til að bera í okt var kvígan Nirvana 530 undan Dúllara 07024. Hún kom með kolótt naut undan Rósant 09051. Nirvana er alveg ágæt, mjólkar fínt, mjaltir mættu vera betri en skap alveg ágætt. Rispa 477 Sjómannsdóttir bar svo nauti undan Mána 03025 og systir hennar Taug 533 Taumsdóttir bar kvígu undan Jökli 09001 sem heitir Ísöld. Taug er fín kvíga en eins og svo algengt er að verða þá mættu mjaltirnar vera betri. Flæðið nær ekki alveg 2 lítrum á mínútu. Snotra 474 Snotradóttir bar nauti undan Jökli Skráma 520 Skurðsdóttir bar kvígu undan Ófeig 02016 sem heitir Ófeig. Skráma virtist ætla að verða stórglæsileg kvíga en þegar fór að vaxa verulega undir henni þá kom í ljós að júgurbandið er ekki nægilega sterkt þó að það líklega haldi alveg og svo er skapið ekki nægilega gott, hún sparkaði dálítið af sér fyrstu vikurnar og er svo dálítið taugaveikluð á biðsvæðinu og er yfirleitt síðust inn og kemur helst ekki nema maður nái í hana. Svo er lítil spenavarta mitt á milli fram og afturspena sem algjörlega hendir henni út úr nautsmæðradóm en hún var grænflögguð í huppu enda með súper ætterni og kynbótaeinkunn. Mjaltirnar er í lagi og hún mjólkar ágætlega. Lævís 512 Prímusdóttir bar nauti undan Hálsi 09029 en var komin með heiftarlega júgurbólgu í VA og er því þríspena. Skapið er líka leiðinlegt, sérstaklega þegar hún er þvegin og þar sem við eigum nóg af betri kúm og kvígum þá ætlum við bara að láta hana fara í kaupstaðinn. Plóma gamla bar svo sínum 8. kálfi og var það svarkrossóttur kálfur undan Stássa 04024. Hann seldum við í Hvamm en þaðan er einmitt Plóma en hún er án efa bestu kaup sem við höfum gert fyrr og síðar og er búin að skila okkur mörgum kostakúm í gegnum árin, þar á meðal Sveskju 349 sem er ein afurðahæsta kýrin hér í sveit. Kveðja 431 Stjarnadóttir bar nauti undan Síl 09028 og Spræna 1126 Þverteinsdóttir bar líka nauti en það var undan Jaka 04044. Spræna er núna í 40 kg á dag og hefur farið hæst í 43 kg á dag sem er það næst mesta sem kýr hefur farið í hér á bæ, næst á eftir Sveskju sem náði 44 kg á síðasta mjaltaskeiði. Skrá 521 Lykilsdóttir bar svo löngu dauðu nauti undan Gylli 03007 en þetta var fyrsta nautið undan honum sem við fengum en fyrir eigum við 5 kvígur undan honum. Skrá var grænflögguð sem kvíga enda mjög góðar ættir á bak við hana og hátt kynbótamat. Hún er mjög frambærileg kvíga þó að mjaltirnar séu ekki eins flottar og hjá móður hennar henni Kommu 316 og svo er aðeins skap í henni sem mátti reyndar alveg gerast því móðir hennar var algjör lumma og hefði líklega ekki virkað vel í róbótafjósum því hún var svo róleg að ég efast um að hún hefði verið dugleg að koma sér í mjaltir. Skrá er þriðja Lykilsdóttirin og er Lykill greinilega naut sem blandast vel inn í stofnin hér því allar eru þær mjög frambærilegar. Skrá ætti því alveg að geta orðið nautsmóðir því þetta er líka mjög falleg kvíga. Þá var komið fram í desember og fyrst til að bera í þeim mánuði var kvígan Klár 534 Sandsdóttur þegar hún kom með dauða kvígu undan Rósant 09051. Klár er með frekar granna og langa spena og utarlega setta, en það hefur hún frá móður sinni Visku Lóadóttur. Mjaltirnar eru mjög góðar og þessi kvíga kemst alveg í gegnum nálaraugað vegna þess hve þægileg hún er að öllu öðru leiti, sjáum svo hvað verður á næsta mjaltaskeiði. Alsæla 475 Logadóttir bar kvígu undan Sorta 90007 og er þetta önnur kvígan undan honum sem fæðist hér og þykir mér það ekki leiðinlegt. Þökk 424 Júdasardóttir kom með naut undan Jaka 04044 en ég er alltaf að bíða eftir kvígu undan Þökk því hún er svo mikið uppáhald. Gjörð 538 Sandsdóttir kom með kvígu undan Gæa 09047 og er hún hræðileg kvíga, mjólkar nákvæmlega ekki neitt og er ömurleg í skapi. Hún sparkar ekki eða neitt svoleiðis en bölvar bara og ragnar þegar maður þarf eitthvað að eiga við hana og reynir hreinlega að hjóla í mann. Hún hefur mest farið í 5 kg á dag og verður send með næsta hóp í kaupstaðinn takk fyrir. Móðir hennar hún Molla 383 Þrumaradóttir bar svo daginn eftir nauti undan Jarli 09039 en hún er bara mjólkuð í kálfana vegna hárrar frumutölu og verður send í kaupstað þegar fer að minnka í henni, en það sýnist mér að geti orðið fyrr en seinna. Besta 423 Laskadóttir sem bar nýbúin að fá rautt flagg í huppunni bar svo tveimur kvígum undan Jaka 04044. Þó að Besta sé komin með nautsmæðraeinkunn þá yrði aldrei sent undan henni naut vegna þess að hún hefur einn galla sem er þungar mjaltir. Við notuðum Jaka talsvert því okkur leist vel á hann þegar hann kom fyrst inn en nú er hann bara fallinn í c flokk og því verið tekinn úr notkunn, en ég vona bara að þessar tvær kvígur verði fínar eins og hálfsystir þeirra sem við eigum hér fyrir. Kvígurnar heita Héla og Hálka og voru þriðju tvíkelfingarnir frá því 9. okt þegar Sveskja bar sínum kvígum. Klauf 537 Klaufadóttir ákvað að bíða ekki fram á nýtt ár með að bera og bar dauðu nauti rétt fyrir áramót. Það var undan Þrym 02042. Klauf kemur vel út og er mikil framför frá móður sinni sem var undan Farsæl og var alveg skelfileg í mjöltum og mjólkaði líka lítið. En þetta á allt eftir að koma betur í ljós en enn sem komið er lofar hún góðu. Fyrst til að bera á þessu ári var svo Þota 393 Stássadóttir en hún kom með flottan bola undan Sálómon 04009. Þota held ég að geti bara ekki átt kvígu því þetta var hennar fjórði tuddi í jafn mörgum burðum. Mig hefur alltaf langað í kvígu undan henni því Þota er flott kýr með góða júgurgerð og þægileg að öllu leiti og er ein af okkar allra bestu kúm.
Nú fara á slátuhús þrjár fyrsta kálfs kvígur og eru það Júferta Selsdóttir, Gjörð Sandsdóttir og Lævís Prímusdóttir. Júferta er þriðja og síðasta Selsdóttirin sem fer á sláturhús en reynsla okkar af þessu nauti er hræðileg, hinar voru Urta sem var ömurleg í skapi og mjöltum en hún var undan Sprænu sem er mjög fín kýr og hin var Selma sem mjólkaði lítið og var lengi að því en hún var undan Huppu 137 sem var fín kýr líka. Engin þessara kvígna kemur til dóms sem hlýtur að vera slæmt fyrir dóminn á Sel því þá vantar mikilvægar upplýsingar í hans kynbótaeinkunn því þessa þrjár kvígur eru alveg 7-8% af heildarfjölda þeirra dætra sem undan honum eru við fyrstu útreikninga, því fjöldi dætra nautanna við fyrtu útreikninga eru yfirleitt 35-40 gripir. Svo kemur Sandur ekki nægilega vel út hér, Gjörð er náttúrulega snargeðveik og fádæma léleg og hinar tvær þær Klár og Þrusa eru bara svona rétt nógu góðar til að sleppa í gegnum nálaraugað og það er dálítið skap í þeim öllum. Tvær áttum við svo undan Prímus önnur þeirra slasaðist og var drepin í haust en ég vil meina að hún hefði getað orðið fín, en Lævís er reyndar falleg kvíga en skapleiðinleg og þríspena þannig að hún fer. Með þessum kvígum fer ein reynd og góð kýr sem fékk heiftarlega bráðajúgurbólgu í einn spena eftir spenastig. Þetta er hún Klöpp 343 Stórasteinsdóttir en hún geltist hreinlega upp í lyfjameðferðinni en hún á ekki að bera fyrr en í júní þannig að það svarar ekki kostnaði að vera að fóðra hana í marga mánuði upp á von og óvon um það hvernig hún verður á næsta mjaltaskeiði. Hún er líka með svo hryllilega langa og stóra spena að það er ekkert skrítið að annaðhvort hún eða einhver önnur hafi stigið á einn þeirra.
Nýjustu reyndu sæðingarnautin komu í brúsana hér á svæðinu um daginn og erum við búin að nota Vindil 05028 einu sinni og Birting 05043 einu sinni. Hinir þrír sem ég get hugsað mér að nota eru Baugur 05026, Röskur 05039 og svo Koli 06003 en þeir verða ekki notaðir nema kýrin sé með góðar mjaltir. Loksins komu naut undan Stíg sem gefa líklega bæði gott skap og góðar mjaltir. Annars reyni ég bara að nota ungnautin sem mest núna því að þau eru best og alltaf skemmtilegast að sjá hvernig gripirnar verða undan þeim þó að stundum komi heilu árgangarnir sem virðast ekkert gefa af viti eins og mér finnst ´07 árgangurinn ætla að gera allavega svona til að byrja með. Það er þó misjafnt hvernig árgangarnir koma út á milli bæja og svo getur vel verið að maður hafi bara ekki hitt á réttu nautin.
Þangað til næst Kv Þórir
»
24.10.2011 12:04:37 / torfur
Góðan dag Nú er skítkalt úti og ég nenni ekki út strax þannig að ég ætla að koma frá mér eins og einu bloggi. Kornvertíðin er búin þetta árið og var hún ekki til að hrópa húrra fyrir. Óþresktir eru líklega um 25 ha sem lögðust undan snjó eða voru ónýtir vegna frosta. Restin fauk í roki. Og þetta eru bara hektarar sem ég hafði annars skorið fyrir Fjarðarkorn ehf. Svo klúðruðust einhverjir hektarar hjá bændum sem eiga sjálfir vél. Kornræktin í ár var í stuttu máli svona: Korn komst yfirleitt snemma niður, komst seint til þroska vegna kulda, fyllingin var léleg, alltaf ófriður og rigning í haust, allt of knappur tími til þreskingar. Vesen. En sumir fengu þó ágætis uppskeru og fínt korn.
Ég og Sara plægðum kornakurinn, grænfóðurakurinn og gamalt tún með í einu lagi um daginn og auk þess tvo litla kornakra, alls um 13 hektara. Við notuðum báða traktorana og báða fjórskera búnaðarfélagsins til verksins og tók þetta um 1 og hálfan dag. Stóri akurinn var um 10,6 hektarar og 650 metra langur en þetta er í eina skiptið í mörg ár sem hægt er að plægja þetta svona því hluta af þessum akri verður lokað í vor. Við nutum þess bara á meðan það var hægt.
Lömbin voru tekin inn um daginn og rúin og eru þetta alls 5 gimbrar og einn hrútur undan Grábotna. Þá voru líka tekin inn ein veturgömul ær og fullorðni hrúturinn. Þetta eru fallegar gimbrar og sýnist mér að hrúturinn sem við fengum í fyrra frá Völlum sé að gefa mjög holdmikil og vel gerð lömb.
Ég sé það að þegar mikið er um að vera í burðum hjá kúnum þá verð ég að vera duglegri að blogga því núna þarf ég að segja frá ellefu burðum. Og hér kemur það. Flenna 492 Alfonsardóttir bar nauti undan Kraka 09002. Flenna er stór og mikil kvíga og mjög róleg. Hún er með fallegt júgur og spenar eru mikið betri enn á móður hennar henni Tottu 1170 þannig að ræktunin hefur borið tilætlaðan árangur en þetta atriði reyni ég alltaf að leggja áherslu á þegar Tottu er haldið. Flenna mjólkar þó ekkert sérlega mikið en hún bætir það upp með þægilegheitum á öllum öðrum sviðum. Svo var komið að dekurdýrinu hennar Söru að bera, henni Freyju 853 Kistilsdóttur. Hún kom með rautt naut Söru til mikilla vonbrigða en þetta naut var undan Stíl 04041. Þarna átti að bæta júgurgerð og mjólkurmagn en júgurgerðina þarf að reyna að bæta. Freyja er annars að mjólka ágætlega og er núna í tæpum 27 kg. Næst bar Þruma 339 Vaðsdóttir nauti undan Jarli 09039. Þruma er okkar næst elsta kýr og er búin að vera alveg súper góð heilt yfir. Og hún kemur alltaf á óvart, þetta er ekkert sérlega burðug kýr en mjólkar ótrúlega. Núna t.d. stálmaði júgrið mjög illa hægra megin hálfum mánuði eftir burð og það hreinlega sprakk á hliðinni ofan við spenana og er nú bara eitt flakandi og frekar ógeðslegt sár. Þetta varð til þess að á meðan stálminn var sem verstur þá hrundi hún í nyt en er nú búin að ná sér vel á strik og er í um 35 kg á dag. Frumutalan er lika undir 100 sem er magnað miðað við hvernig þetta lítur allt út. Þetta verður samt síðasta mjaltaskeiðið hennar því hún hefur dottið niður í súrdoða (reyndar ekki núna) og við losum okkur líka yfirleitt við kýr sem okkur finnst vera farnar að láta undan, áður en til þess kemur. Negla 376 Slóðadóttir(HN) bar loksins kvígu en ég hef verið að bíða eftir kvígu undan henni frá því að hún bar fyrst. Ekki skemmdi fyrir að þessi kvíga er undan Sorta 90007 en það var sérpantað sæði og aðallega verið að hugsa um júgur og spenagerð í því sambandi og ekki síst karakter því að Sortadætur eru í miklu uppáhaldi hjá mér vegna þess hversu ákveðnar þær eru en þó góðar í umgengni. Þessi kvíga heitir Egla en hún verður með frekar lágt kynbótamat því Sorti er ekki með hátt kynbótamat í heildina nema fyrir spena þar stendur hann í 162 að mig minnir. Næst til að bera var svo Pera 462 Leistsdóttir en hún kom með kvígu undan Ófeigi 02016 og hlaut hún nafnið Sítróna. Pera er falleg kýr en þó heldur lágfætt. Júgrið er alveg súper og mjög vel borið og að horfa aftan á hana minnir mann helst á fallegar Holstein kýr fyrir utan löngu lappirnar. Slufra 514 Prímusardóttir bar svo kvígu undan Rósant 09051 en Slufra hafði legið illa tognuð í annari kálfastíunni í um þrjár vikur og ekkert staðið upp. Yxna kýr riðluðu hana í drasl þegar hún var sett saman við þær nokkrum vikum fyrir burð. En þegar kálfurinn var kominn í heiminn spratt hún á lappir af sjálfsdáðum og eftir það gat hún orðið staðið upp sjálf, þó með aðstoð fyrstu daganna. Slufru var svo slátrað því hún hefði aldrei getað orðið söm og aldrei plummað sig innan um hinar kýrnar. En kvígan hennar lifir og heitir Bulla. Þá var komið að Þoku 473 Haladóttur og bar hún kvígu undan Síríusi 02032 sem heitir Móða. Næst bar svo Blokk 523 Húsadóttir kvígu undan Stubb 09017 sem hlaut nafnið Ögn. Blokk er undan Renglu Hávarðsdóttur sem var snarbiluð í skapi og svo var Blokk frekar stygg í uppeldinu þannig að við vorum logandi hrædd við hana í fyrstu mjöltunum. Ég held að ég geti talið þau á fingrum annarar handar, skiptin sem hún hefur sparkað af sér og aldrei hefur hún lamið okkur. En hún er þó smá trekkt ennþá en það kemur. Mjaltirnar eru þó ekki nógu góðar og spenarnir vísa dálítið fram á við en eru þó vel gerðir. Þá var komið að Sveskju 349 Dílsdóttur(HN) og bætti hún okkur upp tjónið fyrir tveimur árum þegar hún lét tveimur kvígum undan Skurði 02012, og kom með tvær kvígur undan Stássa 04024 núna. Þær heita Hjálp og Aðstoð og braggast ágætlega þó að þær hafi verið frekar smáar við fæðingu. Þetta virtist ekki vera nóg af tvíkelfingum því Þrusa 526 Sandsdóttir bar tveimur dauðum kálfum, nauti og kvígu, en þetta var hennar fyrsti burður. Þrusa verður vonandi ágæt en það á eftir að koma betur í ljós þegar fram í sækir. Svo í morgun bar Júferta 524 Selsdóttir nauti undan Þin 04006. Ég er ánægður með að þarna skuli hafa komið naut því þessi ætt hennar Júfertu er ekki að gera það gott og nú er komið kjörið tækifæri til að útrýma því úr stofninum hér, því Júferta er eina kvígan sem er eftir. En nautkálfurinn var stór og fallegur og getur gert það gott á Halllandi eins og flest öll naut sem hér fæðast.
Gott í bili Kv Þórir
»
04.09.2011 22:59:21 / torfur
Jæja þá skal sest niður við skriftir /> Göngur eru búnar en það var gengið í gær og réttað á Hraungerðisrétt. Hér vantar eitt lamb og eina veturgamla á en ærin hlýtur að skila sér þar sem gimbrin hennar kom af fjalli hvorki meira né minna en 54 kg þannig að varla hefur hún villst undan. Þessi gimbur hefur gengið undir nafninu steralambið en við tókum eftir því strax í vor hversu rosalega búttað þessi gimbur var og var nánast strax ákveðið að hún fengi að lifa nú í haust. Þetta er allavega stærsta gemlingslamb sem ég hef séð. /> Þoka setti talsvert strik í reikningin hér í sveitinni og hef ég verið að heyra um frekar slæmar heimtur sumsstaðar. /> Það komst loks í verk að steypa í haugtankinn í sumar og nú er líklega komin um 60-70 cm af mykju í hann. Það verður svo gaman að vita hversu vel gengur að keyra úr honum mykjuna með nýju haugsugunni sem búnaðarfélagið fjárfesti í í vor. /> Heyskapur er enn í gangi hérog eigum við eftir að slá grænfóðrið í annað og þriðja sinn og jafnvel hreinsaaf nokkrum gömlum túnum. Uppskeran er ekki alveg eins mikil og í fyrra en nógsamt. /> Heyskapur og þresking ná líklega saman þetta árið en það væri hægt að byrja að þreskja hér á nokkrum bæjum ef maður kærði sig um það, en ég er að vona að menn sitji á sér í rúma viku í viðbót. /> Margar kýr hafa borið í sumar og líka kvígur sem ætla að reynast misvel. /> Brenna 491 Lykilsdóttir sem aldrei var neitt neitt í uppeldinu bar hjálmóttri kvígu í júní undan heimanautinu Norsara Stokkssyni og virðist Brenna ætla að sleppa í gegnum nálaraugað enda með flott júgur og spena og mjaltir og skap alveg með ágætum. Hún mjólkar mest um 17 lítra á dag og ætla ég henni ekki að mjólka meira á þessu mjaltaskeiði miðað við það hvernig hún þroskaðist í uppeldinu. /> Grýla 511 Giljagaursdóttir bar svo dauðri kvígu undan Síl 09028 í byrjun júlí en Grýla er komin á sláturlistann vegna þess að hún mjólkar ekki neitt, ég held að meðaltalið í dag sé um 13,5kg. Að auki er hún ekkert of góð í mjöltum. Þetta er samt stór og falleg kvíga og voru það því ákveðin vonbrigði að hún yrði ekki betri en raun ber vitni. /> Þann 10. júlí fæddust svo tveir kálfar undan Aðli 02039, sá fyrri var koluhjálmótt kvíga undan Hörku 347 Kaðalsdóttur en hinn var svartur boli undan Stillu Gyllisdóttur. Stilla átti líka naut undan Aðli í fyrra sem er til hérna og á að notast í neyð og er hann mjög stór og flottur. Þessi nýji verður líka settur á hér aðallega vegna þess að hann ætlar að verða stærri en stóri bróðir. Stilla hins vegar fékk slæma skitu skömmu eftir burð sem við réðum ekkert við og er ekki nema svipur hjá sjón á eftir og er bara eins og gangandi beinagrind. Hún hefur þó lagast talsvert frá því að hún var verst og er komin í um 16 kg meðalnyt sem er um 20 kg minna en þegar hún var í sínu besta formi í fyrra. Þetta er í annað skiptið sem þetta kemur fyrir hana og núna þarf bara að ná henni í meiri hold svo hægt sé að senda hana í kaupstaðinn. Harka hins vegar er í ágætis formi og skilar alltaf sínu. /> Í lok júlí bar svo Kría 443 Laskadóttir kvígu undan Gusti 09003 og í byrjun ágúst bar Buna 456 Gangandadóttir kvígu undan Gylli 03007. /> Næst bar Selma 519 kvígu undan Gusti 09003 og svo Gróska 306 sú gráskjöldótta nauti undan Silfra 09004 sem var koluskjöldótt og drapst daginn eftir. /> 14. ágúst bar Huppa 137 Þrymsdóttir nauti undan Tópas 03027 en daginn eftir lagðist hún í doða í legubásunum og hafði teygt eða slitið vöðva eða sin í læri og því þurfti að lóga henni. Hún gat þó staðið upp af sjálfsdáðum í burðarstíunni en eftir rúma viku og þegar útséð var með að þetta ætlaði ekki að jafna sig létum við hana fara. /> Stýra 497 Stjóradóttir bar svo nauti undan Gusti 09003 og ætlar hún að verða ágæt með fyrirvara um að hún róist, sem ég hef fulla trú á. /> Blika 513 Kappadóttir bar svo nauti undan Silfra 09004 og loksins kom grátt naut eða öllu heldur kolgrátt þó að það sé mikið grátt, þetta er frekar skemmtilegur litur. Þetta naut ásamt öllum hinum verður bara selt í Hallland. Blika hins vegar er varla eigulegur gripur því spenarnir eru mjög grófir og vísa frekar mikið út á við og eins finnst okkur júgrið ekki vera burðugt. Hún er því eiginlega komin á svarta listann strax eins og hún Urta 516 Selsdóttir sem bar kvígu undan Merkúr 09009 sama dag en Urta er hrikalega lengi að mjólka og er líka leiðinleg í skapi. /> Þann 1. sept bar svo loksins hún Saga 432 Moladóttir nauti undan Síl 09028 en hún hafði 11 daga framyfir tal. /> Næstar eiga svo Flenna 492Alfonsardóttir og Freyja 853 Kistilsdóttir að bera en það er ekki langt í þær. /> Tvær kýr hafa farið á sláturhúsí sumar en það voru þær Úlpa 482 Völustakksdóttir vegna kálfleysis og Elja 454Laskadóttir vegna sömu ástæðu. /> > > Takk fyrir mig /> Kv Þórir /> > > > >
»
18.08.2011 09:44:57 / torfur
Það er verið að vinna hryðjuverk á síðunni minni tók eftir því fyrir nokkrum dögum að það er verið að nota síðuna mína í einhver tjáskipti. Dettur í hug að það sé verið að skipuleggja óeirðir í London með hálfgerðu dulmáli þannig að ég verð að taka til minna ráða og læsa síðunni í svona um það bil viku:-) Lykilorðið verður þá mjaltakross þegar að því kemur leggið það á minnið
Kv Þórir
»
07.06.2011 20:51:55 / torfur
Góðan daginn Ef einhver er að tala um bloggleti þá er ég líklega holdgervingur þess hugtaks eftir eins og hálfs mánaðar bloggleysis. Ég skelli skuldinni bara á annir í vorverkum og kuldatíðar sem dregur úr manni “ritmáttinn”. Kornakrarnir ná nú yfir 8,5 ha og er það það mesta sem ég hef sáð í hingað til. Ég fann blett innan um gamlar og grónar áreyrar sem ég prófaði að plægja og endaði á 1,5 ha ræmu sem er sirka 300m löng og 50m breið. Kornið kemur reyndar afar hægt upp hér þetta vorið vegna kulda og finnst manni ekkert gerast en maður er vanur því að það taki fljótt og vel við sér. Þetta er í fyrsta skipti sem ég nota nær eingöngu heimaræktað korn og því verður fróðlegt að sjá hvernig það kemur út, þ.e.a.s ef eitthvað verður að marka það vegna kulda. Gamli traktorinn var nær eingöngu notaður í öllum vorverkum hér því nýrri vélin var framdrifsbrotinn og stóð því bara á kubbum inni í fjósi í rúmlega einn og hálfan mánuð á meðan beðið var eftir varahlutum. Nú er hann kominn í lag en er reyndar á verkstæði á Akureyri en það er verið að stilla vendigírinn og uppfæra eitthvað í tölvunni, þannig að það er eins gott að hann vinni fyrir kaupinu sínu í sumar. Nú hillir undir að við tökum skítatankinn í gagnið en það á að steypa í hann á morgunn. Verður nýja haugsugan hjá búnaðarfélaginu notuð við að losa úr honum á túnin en það er flott tæki og þægilegt að nota. Sauðburði lauk einhverntíma í maí og gekk hann bara ágætlega hjá fullorðnu ánum en verr hjá gemlingunum, alla vega framan af. Lömbin voru stór og sérstaklega tek ég eftir hversu löng þau eru enda hrúturinn langur og mikill vexti. Þetta var litskrúðugur fénaður þetta árið og fengum við svarbíldótt, botnubíldótt, móhosótt, svart, grátt, mórautt og botnótt en langflest lömbin voru þó hvít. Ég sagði frá því hér í síðustu færslu að Hrísla 337 hefði verið eitthvað dommaraleg þegar hún var sett út í vor. Við fengum doksa til að koma, og kíkja á hana daginn eftir og hún taldi líklegast að hún hefði étið einhvern járnhlut, nagla eða eitthvað slíkt og hóf meðhöndlun í samræmi við það. Hluti af meðhöndluninni var að setja 20 lítra af vatni með kolpasta í vömbina á henni til að draga í sig hugsanlega eitrun og eins til að þenja út á henni vömbina. Við þetta féll Hrísla í gólfið og við reyndum að draga hana inn úr sæðingarstíunni og yfir í burðarstíuna en í hliðinu gaf hún upp öndina. Þá ákváðum við að kryfja kúna og fullvissa okkur um ástæðuna. Þá vall út mikill vökvi úr kvíðarholi sem benti til þess að kýrin væri með krabba og við nánari athugun reyndist svo vera enda kviðarholið alsett meinvörpum og netjan sem umlykur vömbina blóðhlaupin og ofvaxin. Ástæða þess að Hrísla drapst var sú að þegar við settum 20 lítra af vatni í vömbina í ofanálag við allan þennan vökva sem var í kviðarholinu þá gafst hjartað upp af öllum þrýstingnum á það. Jæja farið hefur fé betra segji ég nú bara eins og pönkarinn í samspillingunni þegar Ási yfirgaf þingflokk VG í vor. Norsari 508 Stokksonur fór á sláturhús um daginn og vóg 298,5 kg og verður helmingurinn af honum á borðum í brúðkaupi nú um miðjan júni, ég verð bara að segja að við áttum ekki von á honum svona þungum en hann átti aðeins einn dag í tveggja ára afmælið.
Öll geldneyti eru komin út hér og fara kálfarnir inn og út á hverjum degi. Kýrnar eru nýfarnar að fara út á daginn eftir sirka viku útiveru á kvöldin, en með þessu móti verða viðbrigðinn ekki eins hastarleg vegna sólarinnar eins og þau yrðu ef þær væru settar út í fyrstu að degi til. Það gengur hér yfir mikil nautaalda en Klók 403 bar þó kvígu undan Síríusi 02032 sem heitir Kæn og er númer 605. Síðan þá hafa komið 5 naut í röð. Kvígurnar hennar Söru, þær Mjöll 1037 (Svargrönótt)og Flauta 464 (Koluhjálmótt) komu báðar með naut undan Silfra 09004 sem áttu að sjálfsögðu að verða gráar kvígur, en Mjallarson er svargrönóttur, þó gæti hann verið grágrönóttur en það er ekki svo auðvelt að greina á milli og Flautuson var bara plain svartur. Smella 446 Gauksdóttir kom svo með bola undan Gust 09003 og Dolla 507 Lauksdóttir kom með svartan fallegan bola undan Sorta 90007. Loks bar Klöpp 343 nauti undan Flóa 02029. Öll þessi naut verða seld í Hallland en fara þó ekki fyrr en Hneta 506 Lykilsdóttir er borin, það verður að sjá hvað hún kemur með en ég er að vonast eftir kvígu þar enda Hneta falleg kvíga og gengur með kálf undan Gylli 03007. Mjöll 1037 er ekki með fallega spena né júgur og er aðeins leiðinleg í skapi. Flauta er góð í skapi en júgur mætti vera sterklegra og mjaltirnar eru þungar þrátt fyrir að hún sé undan Kappa 01031. Dolla hinsvegar er ágætis kvíga og kemur bara vel út en hún er falleg á skrokkinn, með fína júgur og spenagerð og gott skap. En nóg í bili. Kv Þórir
»
25.04.2011 22:59:54 / torfur
Gleðilegt sumar kæru síðugestir Nú fer í hönd einn sá skemmtilegasti tími ársins þegar allt lifnar við og nóg er að gera, svo nóg að maður sér varla fram úr því, þannig vil ég hafa það. Ég og Sara eigum bæði að vera kominn með “gráðu” sem frjótæknar og bíðum bara eftir skírteininu í hús, en við vorum á námskeiði á Stóra-Ármóti í lok mars og byrjun apríl. Það ætti ekki að vera vandamál að koma kálfi í kýrnar hér á bæ við skulum alla vega vona það;-) Sauðburður byrjaði fyrir rúmri viku þegar Búrka mín átti móhosótta gimbur og svarbíldóttann hrút. Hrúturinn var svo vaninn undir Pöndu hennar Söru eftir að húr hafði átt dauðann svarbíldóttann hrút. Það eru bornir fjórir gemlingar en sá síðasti sem bar kom með svarta gimbur sem drapst óvænt í dag. Systkinabörn mín voru að kíkja á lömbin og komu til mín og sögðu að litla lambið væri steinsofandi, það var nú heldur meira en bara sofandi. Lömbin sem fæðast hér í vor verða líklega litskrúðug þar sem hrúturinn er svarhosóttur með krúnu. Vorverkin eru byrjuð og er ég búinn að keyra allann skít fyrir þó nokkru síðan og var nýja haugsugan sem Búnaðarfélag Eyjafjarðarsveitar meðal annars notuð við verkið. Þetta er 12000L Redrock suga með áfyllingarrana sem er alger snilld því þá þarf maður aldrei út úr traktornum nema bara til þess að fara í mat og kaffi. Ég notaði við hana eldri vélina hér á bæ því sú nýrri er með brotið framdrif og fer gamli bara létt með hana hér um enda allt marflatt og gott. Svo er ég búinn að plægja litla akurinn hér sunnan við heimreiðina og maka yfir hann kálfahálminum sem við höfum safnað í haug síðasta árið. Svo er bara að fá dreifara hjá búnaðarfélaginu og maka kúamykju yfir, herfa og sá heimaræktuðu sáðbyggi af gerðinni Skúm, ódýrara verður það varla. Í stærri akurinn fer heimaræktað bygg af gerðinni Olsok í mestan hluta, en í hálfan hektara ætla ég að setja Judit svona til að ná nýrri tegund af sáðkorni. Kornið er í spírunarprófi í bökkum og lofar bara góðu. Í dag settum við geldkýrnar út og allar kelfdar kvígur alls 22 gripi. Lætin voru alveg í lágmarki enda eru þær þungar á sér margar hverjar. Hrísla 337 er eitthvað lúpuleg og hún fór því bara beint inn aftur og beint inn í sjúkrastíu og líst mér ekkert sérstaklega vel á útlitið á henni. Hún á að bera í byrjun júlí að mig minnir en hún er búin að vera geld í um mánuð. Við geltum hana frekar snemma þetta árið því hún mjólkaði orðið svo lítið og svo er hún orðin fárveik núna og ég er að spá í hver fjandinn geti verið að henni því ég hef aldrei séð kú á geldstöðu, sem ekkert virtist ama að við geldingu, horast niður og missa alla lyst. Kannski dýralæknirinn geti sagt mér það á morgunn. Ég var mikið að spá í að halda henni ekki síðast því hún er ekkert sérstaklega góð kýr, hefði kannski betur haldið mig við það. Tvær kýr báru sínum öðrum kálfi í apríl og nú er hlé til 21. maí. Fyrst bar Snudda 437 Rösksdóttir kvígu undan Síríusi 02032 sem heitir Sleggja og er númer 604. Snudda fór strax hátt í nyt og er í um 32 kg á dag núna. Svo bar Rúsína 428 nauti undan heimanautinu Norsara en það naut átti eitthvað erfitt með öndun og drapst nokkrum klukkutímum eftir burð. Rúsína stálmaði illa fyrir burð og varð hálf veik af júgurbólgu vinstra megin en er að ná sér núna og ætlar að mjólka gríðarlega eins og hún á kyn til en hún er undan Sveskju 349 sem er mjög mjólkurlagin og Baug 05026 sem er undan Stíg og Toppu Punktsdóttur frá Kotlaugum í Hrunamannahrepp, en Toppa þessi mjólkaði yfir 10000 kg á fyrsta mjaltaskeiði. Rúsína er með hæsta kynbótamatið og hæstu afurðaeinkunina í Búnaðarfélagi Eyjafjarðarsveitar og kom Guðmundur Steindórs að líta á hana um daginn vegna þess en þar sem hún er hyrnd verður hún ekki nautsmóðir. Svo er líka alveg spurning hvort júgrið sé nægilega sterkt og vel borið. Guðmundur skoðaði 22 kvígur og dæmdust þrjár með 86 stig en það voru þær Elja 454 Laskadóttir sem er gríðarlega spennandi gripur en því miður þá komum við ekki kálfi í hana, Snotra 474 Snotradóttir og Þoka 473 Haladóttir fékk líka 86 stig. Mínúta 484 Taumsdóttir fékk 85 stig. Ég man ekki allar tölur en ég man þó að tvíburasysturnar undan Alfons 02008 fengu aðeins 80 stig hvor en þær eru ekki með nægilega góða spenagerð og Gáfa 479 Spottadóttir fékk aðeins 79 stig enda allt of lík móður sinni hvað júgur og spena snertir. Á heildina litið er þetta fallegur kvíguhópur, þær eru frekar skrokkfallegar og stórar og skapið alveg súper gott með mjög fáum undantekningum. En nóg í bili á morgun bíður líklega annasamur dagur í vorverkum. Kv Þórir.
»
30.03.2011 19:22:09 / torfur
Góðan dag. Langt er síðan ég hef sest niður og skrifað eitthvað hér inn. Það hefur mikið verið að gerast hjá mér undanfarnar vikur og ég hef ekki verið heima við af neinu viti í um hálfan mánuð. Fyrst fór ég á suðurlandið á aðalfund Samtaka ungra bænda sem var haldinn á Hótel Fljótshlíð. Þar voru samþykktar hinar ýmsu og löngu tímabæru ályktanir um hitt og þetta sem hægt er að nálgast á heimasíðu samtakanna www.ungurbondi.is. Ný stjórn var kosin og komu ég og Eyjólfur Ingvi,Dalamaður og sauðfjárbóndi inn í stjórnina og Helgi Haukur var endurkjörinn formaður. Svo var haldin stórgóð árshátíð á eftir og slegið upp balli með þeirri stórgóðu hljómsveit Hitakút frá Hveragerði. Daginn eftir árhátíð ákváðum við Sara að slást í för með Hvanneyringum í búfjárræktarferð um suðurlandið en sunnudagurinn var sem betur fer aðallega ætlaður til þess að skoða kúabú. Farið var í Gunnbjarnarholt og fjósið skoðað og einnig kíkt í Landstólpa og étinn hádegisverður. Næst var haldið í Eyði-Sandvík og þar skoðað fullkomið róbótafjós með öllu tilheyrandi. Flott fjós þar verð ég að segja og líklega eina fjós landsins sem er með hjólastólaaðgengi á alla staði sem þörf er fyrir að komast á. Veðrið lék nú ekki beint við okkur þegar komið var á Hvanneyri og því ákvað ég að bíða af mér veðrið. Svo ákvað ég að bíða eftir Söru því við þurftum að gera í fjósi hér á Torfum um helgina, þannig að við komum ekki heim fyrr en á fimmtudagskvöldi. Á mánudeginum þurftum við svo að fara aftur á suðurlandið á frjótækninámskeið og stóð það yfir alla vikuna. Bókleg kennsla fór fram á Stóra-Ármóti en verkleg kennsla hjá SS áSelfossi. Þessi vika fer í heimanám og svo þurfum við að taka mánudag og þriðjudag á Stóra-Ármóti og þá verður líklega prófað úr öllum herlegheitunum. Þetta er vel sótt námskeið og eru þrír úr Eyjafirði, þrír úr Skagafirði, tveir af austurlandi, einn úr Bárðardal, einn úr Dölunum og sjö manns af Suðurlandi á þessu námskeiði.
Og þá af kúnum hér heima. Nokkrar kýr hafa farið á sláturhús undanfarið eins og Solla 319 Soldánsdóttir vegna þungra mjalta og svo var hún orðin þríspen. Elding 385 Hjálmsdóttir fór með henni en hún var með veikbyggt júgur og háa frumutölu. Hjörð 483 Hjarðadóttir stoppaði ekki lengi við í framleiðslu en hún var þung í mjöltum og hálf leiðinleg. Með henni fór líka Ljúf 452 Ljúfsdóttir en hún var allt of þung í mjöltum. Íma 9315 fór líka vegna lélegra afurða og tiltölulega þungra mjalta. Það er gott að losa sig við svona kýr sem eru þungar í mjöltum, því þegar maður gerir það þá fyrst finnur maður muninn að vera laus við þær. Svo fór líka hún Komma mín sem var búin að skila sínu og gott betur en var orðin hálf seigmjalta og frumuhá eftir allt álagið. En þá að burðunum. Margar nýjar kvígur eru komnar inn í framleiðsluna og þann 18 febrúar báru tvær. Fyrst var það Flott 487 Alfonsardóttir en hún átti naut undan Bamba 08049. Gáfa 479 Spottadóttir bar líka dauðu nauti undan heimanautinu Norsara. 20. feb bar svo Yrsa gamla Náttfaradóttir sínum 7. kálfi. Það var kvíga undan Blika 08047 og heitir kún Kolla (eins og kvenfuglinn). 2. mars bar svo Spinna 401 Spunadóttir nauti undan Vegbúa 08058. Þetta var hennar 3. kálfur. Spinna er mjög viðkvæm eftir burðinn og er ég að spá í að farga henni á árinu vegna þess, því hún fer alltaf í sama farið ár eftir ár. 5. mars bar Mínúta 484 Taumsdóttir sínum fyrsta kálfi, en það var naut undan Bamba. 6. mars bar svo kvígan Lína 495 Spottadóttir nauti undan Teningi 08068 og 7. mars bar svo Fjara 411 kvígu undan Vegbúa sem heitir Strönd og er númer 600. Fjara var á sínum tíma afmælisgjöf til Söru og var hún nú að bera sínum fyrsta kálfi. 8. mars bar svo Sylla 395 Jakadóttir sínum 3. kálfi og var það kvíga undan Gylli 03007 og heitir hún Akureyri og er númer 601. (Póstnúmerið hér er nefnilega 601) Þá kom smá hlé en þó ekki nema til 13.mars en þá bar tvíburasystir Flottar, hún Fín 488 nauti undan Polli 08054. Og að lokum bar Mús 493 Mikkadóttir kvígu undan heimanautinu Norsara. Þessi kvíga má ekki verða til undaneldis og reyndar ekki Mús heldur vegna þess að Ævör móðir Músar var með fláttu. Þetta verður bara svona til heimabrúks á haustin.Við ætlum ekki að halda Mús aftur vegna þessa, og svo er hún líka með veika júgurgerð. Á heildina litið eru þessar kvígur sem komið hafa inn núna mjög efnilegar, engin er þó gallalaus og má nefna grófa spena á Línu Spottadóttur, utarlega setta spena á Gáfu Spottadóttur og örlítið laus júgur á Alfonsar tvíburunum en allt er þetta þó komið beint frá mæðrunum. Mínúta og Fjara eru með mjög falleg júgur og vel fest en Fjara er bara þríspen, það bara kemur ekkert í HA. Þó er ekki eins og hún hafi verið sogin, engin bólga og ekki ónýtur speni eða neitt. Mínúta er aftur á móti best í mjöltum af þessum kvígum og fer flæðið vel yfir 3L/mín. Engin mjólkar þó eins og Flott Alfonsardóttir en hún hefur slagað í 27 kg á dag, nema ef systir hennar hún Fín nái sömu nyt en hún er alltaf á uppleið og er komin í um 22 kg á dag. Lína og Gáfa geta líka átt eftir að skila okkur fínum afurðum þó að Gáfu hætti kannski til að verða aðeins of lík móður sinni og geti dottið niður í eitthvert súrdoðaslen og lystarleysi. Það verður gaman að taka myndir af þessum kvígum í sumar það ætti ekki að verða vandamál því allar eiga þær það sameiginlegt að vera alveg sallarólegar og frábærar í skapi. En nóg í bili og þangað til næst Kv Þórir
»
17.02.2011 21:07:43 / torfur
Góðan dag
Nú kemur smá ágrip úr ferðinni til Noregs, eða allavega það sem mér fannst merkilegast. Við dvöldum hjá Benna bróður Söru og Höllu konu hans, en þau eru í námi við háskólan á Ási. Að sjálfsögðu komst ég í fjós í Noregi og það á stærsta búið í Noregi. Allavega hlýtur þetta að vera með stærstu búunum því þarna er 400.000 lítra framleiðsluréttur og er bannað að vera með stærri bú. Hrafnhildur frá L-Ármóti tók á móti okkur en hún hefur unnið þarna undanfarin 2 ár eða svo. Þarna voru um 50 mjólkandi kýr mestmegnis af NRF kyni, en þó hefur bóndinn eitthvað verið að leika sér með blöndun frá Jersey. Þarna er mjólkað með DeLaval róbót og fóðrað með heilfóðurblandara úr útistæðum. Við kíktum einmitt á útistæðurnar hjá honum og þarna voru tvær stæður önnur af fyrri slætti og hin af þeim seinni. Fyrrislátturinn var sleginn snemma síðasta sumar og því var stæðan frekar þunn en fóðureiningarnar í kg þurrefnis voru hvorki meira né minna en 0,96 takk fyrir og góðan dag. Aðallega vallarfoxgras og svo einhver grasblanda. Kýrnar gerðu met í nyt smakvæmt síðustu skýrslum og mjólkuðu að meðaltali um 9.800 kg að mig minnir, hvort að það hafi ekki bara verið 9.816 nákvæmlega. Ég og Sara keyptum okkur flotta myndavél í fríhöfninna á leiðinni út og voru norsku kýrnar myndaðar í bak og fyrir og ætla ég að setja þær myndir hér inn við tækifæri. Myndirnar eru reyndar of stórar til þess að setja þær hér inn, og því verð ég að gera eitthvað til að laga það. Það fyrsta sem ég rak augun í voru svarskjöldóttar kýr og spurði ég hvort að þetta væru NRF kýr. Það er svo að þær geta líka verið svarskjöldóttar, en ég hélt að allar NRF kýr væru rauðar eins og nafnið á kyninu ber með sér en NRF stendur fyrir Norsk rodt fe. En þetta er víst eins og með Holstein kynið að þar eru til rauðskjöldóttar kýr líka. Svo sá ég eina kolótta og aðra koluskjöldótta, Hrafnhildur sagði mér að þetta væru blendingar af NRF og Jersey, enda sá ég það þegar ég skoðaði þær betur að júgrin voru betri en á hinum kúnum. Norsku kýrnar eru gríðarlega skrokkfallegar en eru ekkert stærri en stórar íslenskar kýr, inn á milli mátti sjá laus júgur, grófa spena, keilulaga spena, slæma fótstöðu og grófar malir. Athygli mína vakti að búið var að spreyja bláspreyi á nánast allar ef ekki allar kýr á hæklum. Ástæðan var sú að þegar fjósið var byggt þá keypti bóndinn ódýrari gerðina af dýnum í básana sem veldur þessum álagssárum, en þessar dýnur eru svona dæmigerðar ca 16mm þykku gúmmímottur sem við hér á íslandi þekkjum svo vel. En þær norsku eru dálítið þyngri en þær íslensku og þurfa því kannski mýkri dýnur. Geldneytin eru svo í stíum hinumegin við fóðurganginn og eru legubásar fyrir þau, og svo eru kálfarnir á hálmi og eru fóðraðir með fóstru. Nýfæddur norskur kálfur er ca eins og góður hálfsmánaðar gamall íslenskur kálfur að stærð. Á heildina litið þá eru norsku kýrnar í þessu fjósi miklu einsleitari heldur en íslenskar kýr. Stórglæsilegar kýr sáust inn á milli og flestar eru þær vel gerðar og fallegar. Sú sem mest mjólkaði þarna var í 51 líter og nokkrar voru í um og yfir 40 kg. Mér heyrðist á Hrafnhildi að mjaltirnar væru miklu betri en hjá þeim íslensku, en þarna eru alveg til skapvondar kýr og júgurbólga kemur alveg fyrir líka. Ég hef alltaf verið hrifinn af stórum og stæðilegum kúm og þarna var ágætt að sjá hvert maður getur stefnt í ræktuninni, ég vil bara hafa þær íslenskar því það er alveg hægt að ná fram þeim eiginleikum sem maður vill bara ef maður nennir og gerir það markvisst. Að lokum skoðuðum við fundaraðstöðuna sem er á efri hæðinni í fjósinu og bóndinn leigir út fyrir fundi hjá félögum í nágrenninu og einnig fyrir barnaafmæli, við skulum bara segja að flott fyrirtæki væru vel sæmd að þessari fundarstofu. Annað markvert gerðist svosem ekki í Noregi sem mér finnst talandi um hér á þessum vettvangi, nema kannski það að við fórum í marga göngutúra um svæðið í kringum Ás og svo var farið í nokkra verslunarleiðangra. Það er alveg hægt að gera góð kaup á svokölluðu Outlet í Noregi því þeir setja fyrst á útsölur og svo 50% afslátt af útsöluverði sem er snilld.
Þegar heim til Íslands var komið og norður í land fór ég á fund á vegum FEK (félag eyfirskra kúabænda) og mætti þar embættismaðurinn Stefán Haukur ásamt misfríðu föruneyti og bablaði um hvernig viðræðuferlið við ´"lýðræðisbandalag" Evrópu gengi. Hef ekkert meira um það að segja en Stefán hefur líklega skynjað mikla andúð á meðal bænda hér eins og ég vænti að hann geri hjá öðrum vel hugsandi starfstéttum út um land allt.
Hjá kúnum hefur verið frekar rólegt undanfarið og er Totta sú eina sem hefur borið síðan síðast, en hún kom með sitt fyrsta naut þann 31. jan og var hann að sjálfsögðu stór eins og allt sem undan henni kemur. Faðir er Síríus 02032 og verður þessi kálfur seldur í Hallland. Nú líður að því að nokkrar kvígur fari að bera og er Flott 487 Alfonsardóttir komin í burðarstíuna og tvíburasystir hennar hún Fín 488 er komin saman við kýrnar. Gáfa 479 Spottadóttir er komin á tal og farið er að vaxa undir Mínútu 484 Taumsdóttur. Yrsa 317 Náttfaradóttir gamla góða fitubolla er hinsvegar róleg á því og er komin nokkra daga fram yfir. Íma 9315, Ljúf 452 Ljúfsdóttir og Hjörð 483 Hjarðadóttir fóru allar á sláturhús í vikunni, eiginlega allar vegna leiðinlegra mjalta, en Íma var þó send aðallega vegna lélegra afurða. Flæðið úr Hjörð og Ljúf fór helst ekki hærra en 1,3 L/mín og þær komu auk þess alltaf síðastar inn í básinn þannig að það er mikill léttir að vera laus við þetta drasl. Eins og ég hef áður sagt þá er hnífurinn besta ræktunartækið, höggva á hnútinn strax.
Þangað til næst og þa´verða kannski komnar inn myndir Þórir
»
28.01.2011 16:01:55 / torfur
 Einhver sagði mér að Dalbæingar þarna í Dallas city hefðu sagt að það myndi ekkert snjóa að ráði meira í vetur. Eftir þann mesta snjó sem komið hefur í áraraðir þá er núna allt autt yfir að líta. Snjóhaugarnir sem voru orðnir 3 m á hæð, hér allt í kringum húsin hurfu eins og dögg fyrir sólu á 3- 4 sólarhringum. Svo er alveg spurning hvort að það sé eitthvað að marka ellismellina þarna útfrá. Ég athugaði um frost í jörðu í gær því það var kominn plægingarfílingur í mig. Í kornakrinum hér neðan við bæinn var örlítið frost ca 8 cm undir yfirborðinu en það var orðið nokkuð meyrt, en í túnunum var það heldur meira, enda festi snjóinn þar ekki eins og á kornökrunum. Ég ákvað að bíða aðeins rólegur í nokkra daga í viðbót, en nú er farið að kólna verulega og hefur aðeins gránað þannig að þá er líklega best að vera ekkert að hugsa um þetta í bili. Verst er þó ef það ætlar að frjósa mikið á auða jörð núna. Fór á fund í gær í Garðsfjósinu, sem haldin var á vegum Búnaðarfélags Eyjafjarðarsveitar, þar sem Magnús B Jónsson fór yfir dóma á kúm og sýndi okkur hvernig hann dæmdi. Hann sýndi okkur aðallega nokkrar Umbadætur sem Garðsmenn eiga og svo var farið upp í fundaraðstöðu og spjallað. Þessi fundur var mjög fínn og gaman að sjá hve margir mættu og ég skynja aukinn áhuga á viðfangsefninu enda ekki vanþörf á, menn hafa ekki efni á að slá slöku við í ræktuninni og láta bara kylfu ráða kasti, þannig verða engar framfarir því það er einu sinni þannig að ræktunin og framfarirnar eiga sér stað hjá bændunum en ekki hjá ráðunautunum eða á nautastöðinni. Eitt atriði er greinilega mikilvægt að hugsa um en það eru malirnar. Það er samband á milli gerðar mala og júgurfestu og fótstöðu. Ef kýrin er með háan krossbeinskamb og mjög þaklaga malir þá er fótstaðan oftar en ekki nástæð og júgrið vill frekar slitna niður. Í síðustu viku fóru Komma 316, Sæla 353 og Dúndra 420 á sláturhús. Komma flokkaðist í K1A og var 192 kg, Sæla fór í K1B og var 235 kg og Dúndra fór í UN1A og var 175 kg að mig minnir. Þá eru nokkrar kýr bornar og byrjaði það ekki vel því Skvísa 354 datt í flórinn með doða rétt fyrir miðnætti eitt laugardagskvöldið og særði hægri framspenan. Við kölluðum til dýralækni sem hressti hana við og þá var að ná kálfinum. Annar framfóturinn á honum lá aftur með og þurfti ég því að kafa á eftir honum því dýralæknirinn var ekki nógu handleggjalangur. Þetta hafðist að lokum, en kálfurinn sem var risa naut var dauður og hafði líklega verið það í einhvern tíma. Næst bar svo kvígan Hilla 489 Darradóttir, 9 dögum fyrir tal en hún á ekki tal fyrr en 1. feb en hún kom með dauða kvígu. Hilla er með styttri neðri skolt og því ekki ráðlegt að setja á undan henni þannig að ég hugga mig við það, en annars er Hilla fín kvíga, mjólkar vel og er róleg og flæðið fer yfir 3 lítra á mínútu. Svo bar Hjörð 483 Hjarðadóttir stórri kvígu undan Vegbúa. Hún heitir að sjálfsögðu KK. Hjörð er frekar lengi að mjólka og er ekki með nógu fallegt júgur, veit ekki hvort að það sé mikil framtíð í henni. Svo er hún líka leiðinlega stygg. Elding Hjálmsdóttir hefur verið að mjólka 40 kg undanfarið en þetta er samt síðasta mjaltaskeiðið hennar ég nenni ekki að taka sénsinn á júgrinu næsta mjaltaskeið. Svo eru til tvær álitlega kvígur undan henni sem er alveg nóg. Nú er það þorrablótið mikla og víðfræga og svo ætla ég að prófa að skella mér til Noregs í nokkra daga og sjá hvernig þeir gera hlutina. Bless í bili Þórir.
»
11.01.2011 14:15:15 / torfur
  Það ætlar bara allt á kaf núna og er ekkert útlit fyrir að það breytist næstu daga. Mér hefur alltaf þótt plássið á planinu hér mikið og gott en nú er útlit fyrir að ég þurfi að fara að keyra snjóinn eitthvað frá svo hægt sé að moka eftir næstu hryðju. Verst var það um daginn þegar blés hraustlega í norðanáttinni og snjórinn barðist vel saman. Ég hafði ekki hugsað fyrir því að bakka traktornum inn í fjós og þurfti því að bakka honum út en þar mætti mér góður skafl sem ég þurfti að koma mér í gegn til að geta hafist handa við að moka. Það tók góðan tíma að komast suður hlaðið á tiltölulega auðan blett til að geta lagt línurnar um það hvað gera skildi við allann þennan snjó. Eftir nokkura tíma snjómokstur var svo komið fínt plan aftur, en í morgunn var allt orðið fullt aftur og hálfu verra að losna við snjóinn. Ekki hjálpa allir þessi snjóhaugar vindinum við að feykja snjónum af bæjarhlaðinu, en snjórinn núna er léttari í sér vegna minni vinds í nótt.
Og þá er það burðarbloggið mikla. Þökk 424 Júdasardóttir bar rauðskjöldóttu nauti 7. des undan Bamba 08049 og er hann farinn í Hallland. Þökk er fín kýr og mjólkar alveg ágætlega og er snögg að því. 12. des báru bæði Molla 383 og Dama 478. Molla Þrumaradóttir átti rauða kvígu undan Skandal 03034 sem fékk nafnið Smán 585, bæði vegna nafns föðursins og vegna þess að hún var frekar smá. Molla er alveg eftir bókinni, mjólkar ca 27 kg á dag og er snögg að því. Dama Kambsdóttir sem var að bera sínum fyrsta kálfi, átti naut undan Stapa 08051 og fór það í Hallland. Dama mjólkar um 20 kg á dag og er góð í mjöltum og er ótrúlegt hvað hún getur mjólkað miðað við það að manni finnst hún frekar vamblítil, hún minnir mann á veðhlaupahest. Þó er hún ekkert að drepast úr hor hún er bara svona byggð. Solla 319, gamla Soldánsdóttirin átti sinn síðasta kálf 13. des en það var naut undan Snúð 08048 sem er farinn í Hallland. Solla bar með slæma júgurbólgu í HA og reyndum við að taka hana á kúr en hættum að reyna og geltum þennan spena og verður Sollu ekki meint af því og mjólkar nú bara ágætlega á þremur spenum eða um 28 kg á dag sem er ágætt fyrir hana. En þetta var samt síðasti kálfurinn hennar enda er hún að komast á aldur og er frekar lengi að mjólka. Úlpa 482 Völustakksdóttir bar sínum fyrsta kálfi 18. des og var það naut undan Ás 02048 sem að sjálfsögðu fór í Hallland. Úlpa var með mjög slæma júgurbólgu í HF og fór eins með hann eins og HA á Sollu og er hann því geldur, en Úlpa mjólkar samt um 20 kg á dag og er snögg að því. Þetta er líka falleg og stæðileg kvíga og ætla ég að halda henni aftur þrátt fyrir þennan ágalla, en við höfum venjulega ekki gefið þríspena kúm langan tíma. 21. des bar Alsæla 475 Logadóttir sínum fyrsta kálfi og var það rauð kvíga undan Blika 08047 sem hlaut nafnið Pilla 588. Alsæla er ekki með nægilega gott júgur að mínu mati og spenarnir mættu vera betri, en hún getur mjólkað þessi og er að mjólka vel yfir 20 kg á dag og er snögg að því eins og allar kvígurnar sem hafa borið í des. Skapið í þeim er líka fínt og er alveg vandræðalaust að mjólka þær. Elding 385 Hjálmsdóttir bar rauðhuppóttu nauti undan Aðli 02039 á Þorláksmessu og var þetta síðasti kálfurinn hennar. Hún mjólkar gríðarlega vel og fór strax yfir 30 kg og er núna í rúmum 35 kg. En ég bara treysti því ekki að júgrið haldi eitt mjaltaskeið enn og því verður hún látin fara áður en það gerist. Hún er líka ekkert sérstaklega skemmtileg í umgengni, hvumpin og stygg og auk þess mismjalta og alltaf skal hún stífla flæðið inn í básinn því hún vill alltaf standa við hliðið en aðeins fara inn ef tvö öftustu boxin hægra megin eru laus, helst alveg í lok mjaltatímans. Já svona er hún nú skrítin. Nautsmóðirinn okkar hún Svipa 9312 Stígsdóttir bar líka á Þorláksmessu. Í þetta sinn kom kvíga undan Gylli 03007 og heitir hún Gerpla og er númer 590. Svipa datt í doða í fyrsta sinn á ævinni og það á jóladag og þurfti að kalla út dýralækni og gefa henni kalk í æð, en hún spratt upp strax og hefur ekki kennt sér meins eftir það og mjólkar nú sem aldrei fyrr, eða um og yfir 30 kg sem er fínt fyrir hana sem heldur nyt ágætlega og endar venjulega í um 6500 kg eftir mjaltaskeiðið. Svo fer líklega að koma í ljós hvort að nautið undan henni sem fór á nautastöðina í fyrra fái að komast áfram, eitthvað eru fræðingarnir hræddir við nafnið á honum, en þeir breyta því þá bara ef þeir vilja. Dóttir Svipu, hún Besta 423 Laskadóttir bar svo sínum öðrum kálfi 4 jan, en það var brandsokkótt kvíga undan Glæði 02001 og heitir hún Kveikja og er númer 591. Besta er fín kýr og mjólkar betur en móðirin, skapið alveg súper en mjaltirnar mættu vera betri, hún er aðeins lengi en þó ekki til vandræða. 5. jan bar svo Þota 393 Stássadóttir en hún átti tal 28. des, en ákvað að bera bara ekkert á árinu 2010. Hún kom með kolótt naut undan Flóa 02029 og því er ennþá bið í það að ég fái Flóadóttur. Þota væri líklega nautsmóðir ef að kynbótamat hennar væri hærra, en móðir hennar var ekki upp á marga fiska og því dregur það Þotu niður í kynbótamati. Hún er með fallegt og sterkt júgur og er ágæt í alla staði nema að hún var dálítið stirð í tamningu svona eftir fyrsta kálfinn, en það er bara aðal einkenni alls þess sem kemur útaf Stíg blessuðum. Þá er það bara Skvísa 354 Vængsdóttir næst með kálf undan Ás 02048 og kvígurnar Hjörð Hjarðadóttir og Hilla Darradóttir en Hilla er farin að stálma dálítið þrátt fyrir að hún eigi ekki að bera fyrr en um næstu mánaðarmót, ekki gott hvernig verður hún þegar nær dregur burði? Svo er það Totta 1170 með kálf undan Síríus 02032 ne hún hefur aldrei klikkað á að koma með kvígu. Í næstu viku fara svo þrjár kýr á sláturhús en það eru þær Dúndra 420 Hnappsdóttir vegna leiðinlegra mjalta og lélegra afurða, Sæla 353 Finnsdóttir vegna lélegra afurða og stórra spena og svo hún Komma mín sem má muna sinn fífil fegurri en ég vil ekki gera henni það lengur að þurfa að burðast með júgðið sitt um fjósið, enda kemur þetta niður á frumutölu og hún hefur nánast ekkert verið mjólkuð samanvið þetta mjaltaskeið. En þetta er samt ein sú hraustasta kýr sem við höfum átt í sambandi við efnaskiptasjúkdóma og man ég ekki til þess að hún hafi fúlsað við kjarnfóðri. Einu sinni datt hún í flórinn vegna doða eftir burð en spratt strax upp eftir meðferð og hefur ekki orðið misdægurt eftir það. í fyrsta burði átti hún rauðhjálmótta kvígu undan Stíg sem kom dauð og næst lét hún kálfi undan Stíg. Þá var hún sædd aftur með Hjálmi 04016 og átti svo tvíkelfinga, naut og kvígu og á því mjaltaskeiði fór hún yfir 10.000 kg. Næstu mjaltaskeið á eftir fór hún alltaf á einhverjum tímapunkti vel yfir 8.000 kg en þetta tók sinn toll því júgurheilbrigðið hjá henni hefur verið upp og ofan og hafa kálfarnir fengið mikið af mjólk úr henni Kommu. Síðasti kálfur sem hún átti er Skegla Skúmsdóttir og var Kommu bara haldið til að freista þess að fá eina kvígu enn undan henni, þótt að vitað væri að mjólkin færi líklega að mestu leyti í kálfana.
Hún hefur skilað okkur 7 kálfum þar af fimm kvígum en þó bara tveimur á lífi í dag. Æska Laskadóttir sem var stórefnileg kvíga hengdi sig þegar hún var byrjuð sitt fyrsta mjaltaskeið, og nú eru í uppeldi Skrá 521 Lykilsdóttir og fyrrnefnd Skegla. Já það mun eitthvað vanta í fjósið þegar Komma gamla verður farin. Myndin efst á síðunni er af Kommu og er tekin síðasta sumar.
Kv Þórir
»
24.12.2010 10:11:34 / torfur

Gleðileg jól og farsælt
nýtt ár
Það kemur svo gott kúablogg næst því það eru komnir margir kálfar undanfarið og nokkrar nýjar kvígur í mjaltirnar, en þangað til þá reynið að hafa það gott
»
11.12.2010 11:46:50 / torfur
 Hér á bæ komu kettlingar í endan október. Þessir svörtu tveir eru enn á lausu og eru tilbúnir að fara á nýtt heimili, en búið er að panta grábröndóttu læðuna og fer hún í Súgandafjörðinn. Þessir svörtu eru báðir högnar, annar þeirra er fjörkálfur og mikill leikkisi en samt mjög kelinn en hinn er nokkuð rólegri og einnig mjög mikill keligrís. Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á þeim og eins og ég segi eru þeir alveg tilvalin jólagjöf, hver vill ekki eignast svartan jólakött Bestu kveðjur Sara María
»
04.12.2010 21:06:59 / torfur
Já hún byrjar með morgunmjöltum og svo yfirleitt einhverjar gjafir. Við gefum á hverjum degi þrátt fyrir að geta sett inn helling af rúllum á fóðurganginn. Við prufuðum fyrst að setja inn 5 rúllur á fóðurganginn en fannst ganga allt of mikið úr fóðrinu þannig og ef maður ætlar að láta þær éta upp þá eru þær lengi að því og nytin minnkar. Nytin í kúnum er miklu jafnari ef þær fá alltaf nýtt fóður á hverjum degi. Nú er það þannig að mjólkandi kýrnar eru ekki nema 35 en geldar kýr eru um 8. Kvígur sem eiga að bera frá des - febrúar eru líka komnar inn í nýja fjós og eru saman við geldkýrnar. Átbásarnir eru 32 talsins og hafa kvígurnar og geldu kýrnar 11 af þeim, en þeim er gefin fyrrisláttarrúlla af gömlum leigutúnum eða óáborin há af gömlum túnum. Mjólkurkýrnar fá fjölært rýgresi, 1. 2. og 3. slátt, nýræktarhey úr hlöðunni, há af nýrækt, grænfóðurbygg, nýræktarrúllur og vetrarrýgresi til skiptis og reynum við að láta þetta ganga nokkurn vegin rútínu eftir minni. Fjölæra rýgresið finnst mér ekki nægilega lystugt en kýrnar mjólka samt vel af því. Stundum þarf maður að færa gripi á milli stía og er stærsta stían í gamla fjósinu alveg full af kvígum, tólf talsins, sem eiga allar að vera komnar með fang, í næstu stíu eru svo 10 kvígur sem þarf að sæða núna í desember og í byrjun næsta árs. Fjórar kvígur eru bundnar á bás í gamla fjósinu sem eiga að bera á næstu mánuðum og svo eru fjórar kvígur í minnstu stíunni og á hálminum í elsta partinum eru 10 kvígukálfar og 5 nautkálfar. Heilt yfir er staðan þannig að stíurnar eru að geyma gripi sem eru of stórir fyrir gerð stíunar, t.d. ætluðum við aldrei að láta kvígurnar verða eldri en ca 5 mánaða á hálminum, en aðstæður eru þannig núna að yngstu kálfarnir þar eru 4-5 mánaða og þeir elstu eru að verða árs gamlir. Þá er bilið á skágrindunum í einni stíunni of þröngt enda ætlað fyrir eitthvað yngri kálfa. Þetta er bara útaf því að mikið er til af kvígum á aldrinum 12 - 18 mánaða en lítið til af 1 árs og yngra vegna frekar mikils nautaárs á þessu ári og ekki bætir að vanhöld á kálfum eru búin að vera mikil núna undanfarið og færri kvígur verða því í uppeldi á næsta ári. Á næstunni er þó útlit fyrir að fleiri kvígur komist yfir í nýja fjós og smátt og smátt mun rýmkast á uppeldinu. Þær hafa það samt ekki slæmt geta allar legið í einu og fóðrast mjög vel. Tvær kýr hérna voru að slá met í nythæð en það voru þær Sveskja 349 og Spræna 1126. Þær jöfnuðu gamla metið hennar Slæðu 260 sem hún setti árið 2003 í gamla fjósinu og mjólkuðu 42 kg. Sveskja og Spræna eru að mjólka á milli 39 og 40 kg að meðaltali á dag og þola það miklu betur en Slæða gamla gerði, en júgrin á þeim eru alveg að þola þetta og þær eru hraustar mjög. Kveðja 431 bar sínum öðrum kálfi fyir nokkrum dögum og kom með LIFANDI kvígu undan Stapa 08051 sem heitir Stoð og er númer 582. Næst á Þökk 424 að bera kálfi undan Bamba 08049 og svo kvígan Dama 478 kálfi undan Stapa 08051. Það eru líklega 9 kýr og kvígur eftir að bera á þessu ári og þar á meðal Svipa nautsmóðir og Þota Stássadóttir.
En nóg í bili Kv úr kýrhausnum Þórir
»
09.11.2010 22:39:50 / torfur
Góðan daginn allir sem einn
Nú þegar veturinn er kominn þá er gott að finna sér eitthvað að dunda við innan dyra og hef ég verið að smíða mér kerru aftan í bílinn, sem ég er nú búinn með og er bara ánægður með. Markmiðið var að hafa hana nokkuð stóra að flatarmáli en þó létta, en sterka. Við komumst yfir tvo útstillingaskápa úr verslun Símans á Akureyri í "góðærinu", þegar öllu nýtilegu var bara hent ef breyta þurfti til, en þessir skápar voru ekkert slor, smíðaðir úr 5mm álplötum og innréttaðir með flúorperum og hljóta að hafa kostað skildinginn í smíði. Ég sá strax að þarna voru komin skjólborð á kerru og ekki er þyngdinni fyrir að fara. Hásinguna fékk ég undan gömlum sendlabíl sem ömmubróðir minn notaði við sína málaraiðn. Ég kom mér loksins í að smíða þessa kerru núna fyrir ca hálfum mánuði og er hún nú tilbúin og búin að fara tvær ferðir í bæinn og get ég vottað það að hún er létt og þægileg, alveg eins og til var ætlast. Ég ákvað að vera flottur á því og lét zinkhúða hana og vonast því til þess að hún verði eilífðareign, reikningurinn fyrir því á eftir að koma en miðað við annað sem ég hef smíðað og látið húða þá svíður okkur ekkert verðið á því. Mig langaði að skoða hvað áldropaplata kostaði í botninn á henni og vitandi það að hún kostaði augun úr þá spurði ég um verð og 5,3mm plata sem er 1,5mx3m kostar litlar 70.000 kr þannig að ég keypti bara 12mm mótakrossvið í botninn á henni og kostaði hann 24.000 kr sem er alveg nóg og var það, það dýrasta við smíðina fyrir utan prófílinn sjálfan sem kostaði um 30.000. Stál hefur hækkað mikið í verði síðan að ég byrjaði að smíða í kringum ´97 og núna hugsar maður öll stálkaup vandlega og kaupir ekkert umfram þarfir eins og maður gerði gjarnan í "góðærinu" og stubbalagerinn hefur nálgast það að verða nánast enginn, svo vel reynir maður að nýta hlutina. Ég held að þessi kerra hafi t.d. verið dýrari í smíðum heldur en rúlluvagninn sem ég smíðaði úr gamla heyhleðsluvagninum árið ´97. Í hitteðfyrra smíðaði ég svo nýjan búkka undir hann og setti aðra hásingu og efnið í það fór eitthvað yfir 100.000, sem áður hefði bara verið nokkrir tugir þúsundkalla. Í sumar smíðaði ég rúlluvagn fyrir frænda minn á Finnastöðum úr gömlum heyhleðsluvagni og þar nýttum við efni úr gömlum heybaggavagni sem ég smíðaði fyrir pabba hans fyrir um 14 árum Í dag smíðaði ég svo slæðigrindur í fjárhúsin á Stóra-Hamri og nú þarf ég að fara að huga að því að smíða nokkrar gjafagrindur fyrir nautgripi til að selja bændum. Ég hef smíðað nokkrar gjafagrindur fyrir rúllur og menn eru bara ánægðir með þær, hef meira að segja selt eina í Dalasýslu. Kýrnar eru orðnar vanar látunum í mér með slípirokkinn og suðuvélina í fjósinu og nýti ég mér plássið í fjósinu því óspart við iðju mína, þó að draslið sem þessu fylgir fari mest í taugarnar á sjálfum mér þegar ég þarf að komast að til að gefa kúnum.
En þá að kúnum Vanhöldin á kálfunum héldu áfram eftir síðustu skrif hérna og kom dauð kvíga undan Snotru 474 Snotradóttur og Kletti 08030. Þetta var lítil kvíga og bar móðirin henni sjálf að næturlagi. Það er bara eins og kýrnar hérna fái bara ekki sótt og komi ekki kálfunum nægilega fljótt og örugglega frá sér og því drepist kálfarnir. Snotra er flott kvíga og mjólkar orðið ágætlaega og er mjög snögg að mjólka, þannig að þarna virðist markmiðinu hafa verið náð með því að nota Snotra 01027, en móðir hennar er aðeins of lengi að mjólka þó að hámarksflæðið fari eitthvað yfir 2 lítra á mínútu. Og síðastliðna nótt bar svo Ljúf 452 Ljúfsdóttir kvígu undan Snúð 08048 og var hún lifandi. Ég ákvað nú að drífa mig út kl 4 og koma í veg fyrir að þessi kálfur dræpist og dró hann því í heiminn, en þessi kvígukálfur var svo spræk að ég held að hún hefði kannski haft það af, enda móðirin með góða sótt. Ég var búinn að heyra hræðilega hluti um tvær Ljúfsdætur, sem voru til á einum bæ hér í sveit og voru drepnar strax vegna þess að mjólkin væri hreinlega föst í þeim. Mér leist ekki á því móðir Ljúfar var ekki sú besta í mjöltum. En sumt fer bara á betri veg og Ljúf er ekki svo galin. Kvígurnar sem hafa komið inn núna í haust eru bara fantagóðar og var kominn tími til eftir frekar lélega uppskeru undanfarna mánuði, eða á meðan verið var að komast yfir árgang 2005 í nautunum en mér sýnist hann skilja eftir sig fjórar nothæfar kvígur, eina Stjarnadóttur af tveimur, eina Moladóttur eina Baugsdóttur og eina Rösksdóttur. (sjáum til með Ljúfsdótturina) Gauksdóttirin sleppur til en kvígur undan Bauta, Oddgeiri (tvær), Slána, Hávarði (tvær), Þengli, Goða og Bifur hafa allar kvatt þennan heim og flestar fyrir leiðinlegar mjaltir eða skap. Nú síðast fóru Fíkja 407 Bautadóttir og Spesía 445 Bifursdóttir vegna hreinna ómerkilegheita, það ætti að vera valmöguleiki í förgunarástæðu í skýrsluhaldinu. Kýrnar eru í fínu formi núna eins og undanfarnar vikur og Sveskja 349 fór í 41 kg einn daginn og Spræna er nokkrum sinnum búin að fara í 39 kg og yfir og eru þær að mjólka um 37 kg að meðaltali. Undanfarna daga höfum við verið að klippa kýrnar en það er búið að klippa rúmlega 30 kýr og kvigur. Þrátt fyrir góða loftræstingu í nýja fjósinu þá munar þetta heilmiklu upp á loftið í fjósinu og manni finnst bara allt vera hreinna og betra á eftir ekki síst þegar kemur að því að þvo spenana fyrir mjaltir. Kúnum líður líka mikið betur og hætta að svitna á herðakambinum.
En meira en nóg komið af endalausu blaðri um þetta
Kv Þórir
»
26.10.2010 22:24:46 / torfur
Góðan dag hér hafa orðið bústofnsbreytingar af ýmsu tagi og hafa nokkrir gripir horfið á braut og aðrir komið í staðinn þó að þeir séu kannski ekki alveg af sömu tegund. Gimbrarnar voru teknar inn og bættust við tvær auka gimbrar sem ég og Sara fengum í afmælisgjöf í vor. Þær eru báðar svarflekkóttar svona aðeins til að bæta litaflóruna og svo fékk pabbi sér svarsokkóttan hrút sem var stigaður upp á 85 stig. Hér í fjósið er svo komið eitt svín sem verður dekrað við í nokkra mánuði og hér inni, eða inn í skáp þá fjölgaði köttunum um 3 þegar læðan gaut í þriðja sinn á tæpu ári, en líklega eru bara allir kettlingarnir gengnir út strax. Það er engu líkera en að læðan framleiði bara upp í pantanir og ekkert umfram. Hjá kúnum hafa líka orðið talsverðar breytingar en nokkrar kýr hafa kvatt þennan heim og líka tvö naut. Spöng 435 Stjarnadóttir var slátrað vegna leiðinlegs skaps og ótraustra júgurfestinga og einnig Brönu 467 Haladóttur vegna lélegra afurða og júgurbólgu í einum spena. Með þeim fór svo Gyðja 447 Goðadóttir sem var búin að ganga úti með geldneytunum frá í vor, en hún var nánast ekkert mjólkuð eftir burðin í vor vegna slæmrar júgurbólgu, auk þess sem júgrið var stórgallað. Svo fékk kynbótanautið okkar undan Rúsínu 428 og Síríusi 02032, hann Óríon 539 líka að fjúka en hann var með beinkröm að ég held og var ekki að þrífast sem best og best var því bara að lóga honum. Svo fór Nasi litli sem átti aldrei að verða meira en þriggja mánaða, en hann fæddist með hálfgert skarð í vör. Þannig að nú hefur aðeins rýmkað í gamla fjósinu og því meira pláss þegar kvígurnar verða teknar inn. Plóma gamla klikkaði ekki frekar en fyrri daginn þegar hún bar kvígu undan Aðli og svo tóku kýrnar góða burðarlotu á þremur dögum þegar fjórar þeirra báru. Það gekk nú samt alveg hræðilega því Íma 9315 bar dauðri kvígu undan Flóa 02029 og daginn eftir bar svo dóttir hennar hún Þoka 473 líka dauðu nauti undan Flóa. Þá var komið að Sveskju 349 og átti hún dautt naut undan Ófeigi. Ég kenni offóðrun um en geldkýrnar höfðu um nokkurt skeið verið saman við mjólkurkýrnar úti á beitinni og þegar inn var komið þá hafði ég ekki komið því í verk að stúka þær sérstaklega af. Það er búið núna. Íma gekk með 11 daga fram yfir tal og Þoka 7 daga. Kálfurinn undan Ímu fæddist dauður en Þoku kálfur drapst í fæðingu því fæðingin var erfið. Sveskju kálfur var dauður er að var komið en mig grunar að hann hafi bara drepist í fæðingu því hún hafi tekið of langann tíma. En Spræna 1126 kom svo með lifandi kvígu undan Ás 02048 sem kætti mann aðeins, en það var þó bót í máli að tveir af þremur kálfana voru naut. Næst á Snotra 474 Snotradóttir að bera og svo Ljúf 452 Ljúfsdóttir en það eiga nokkrar kvígur að bera í nóvember ásamt nokkrum kúm. En mesta fjörið verður í kringum jólin en ég hef einmitt ekkert á móti því það gerir bara jólin skemmtilegri að þurfa að brenna öllu matardraslinu í að draga kálfa
Kv Þórir
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 21 Alls: 83449
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|